MYNDIR
05. ágúst 2010
Kroksmot2010.jpg
08. ágúst 2010
IMG_7941.jpg
17. júlí 2010
IMG_7479.jpg

 

 
Árni Rúnar - Gull í 1500m
Árni Rúnar - Gull í 1500m
Jóhann Björn - Stórbæting !
Jóhann Björn - Stórbæting !

Árni Rúnar Íslandsmeistari

12 verðlaun UMSS á MÍ 15-22

 

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 15-22 ára, fór fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði um helgina 17.-18. júlí.

Keppendur voru um 200 frá 16 félögum og samböndum, þar af 7 Skagfirðingar, sem allir unnu til verðlauna á mótinu, alls 1 gull, 6 silfur og 5 bronsverðlaun:

 

Árni Rúnar Hrólfsson varð Íslandsmeistari í 1500m hlaupi, í flokki ungkarla (19-22), náði sínum besta tíma, 4:16,89mín.

 

Jóhann Björn Sigurbjörnsson varð í 2. sæti í 100m hlaupi (15-16) á 11,67sek og stórbætti sinn fyrri árangur, sem var 12,10sek frá síðustu helgi.  Hann varð einnig í 2. sæti í 200m hlaupi á 23,84sek, (bætti sig í undanrásum, 24,40sek, en vindur var yfir mörkum í úrslitahlaupinu).

 

Halldór Örn Kristjánsson varð í 2. sæti í 3 greinum (19-22), 400m grindahlaupi á 60,01sek, í 110m grind. á 18,38sek og í langstökki með 5,97m.

 

Laufey Rún Harðardóttir varð í 2. sæti í kringlukasti (17-18) með 25,72m (pm).

 

Guðjón Ingimundarson varð í 3. sæti í 300m grind. (17-18) á 44,38sek (pm).  Einnig í 3. sæti í 110m grind. á 16,95 (pm)..

 

Ísak Óli Traustason varð í 3. sæti í 100m grind. (15-16) á 15,37sek (pm).

 

Vignir Gunnarsson varð í 3. sæti í sleggjukasti (17-18), kastaði 33.17m (pm).

 

Ungkarlaveit UMSS varð í 3. sæti í 4x400m boðhlaupi á 3:43,46mín. Í sveitinni voru Jóhann Björn, Guðjón, Halldór Örn og Árni Rúnar.

Öll úrslit mótsins er hægt að sjá HÉR !

 
DAGSKRĮ
September 2010
SMŽMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNśnaNęsti
 
SPJALLIŠ
Taktu žįtt ķ spjallinu, segšu žķna skošun, leggšu eitthvaš til mįlanna.
Skoša >>

 

HEIMASÍÐA TINDASTÓLLS ER KEYRÐ Á SMALA xL 2
UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 723470-7649