Sex umferðum er lokið í Iceland Express deild karla og klárast sú 7. í kvöld. Að loknum þessum fyrstu umferðum situr KR í toppsætinu, nokkuð sem kemur ekkert sérstaklega á óvart. Þeir hafa ekki enn tapað leik, komust þó nálægt því gegn Grindavík, en unnu með tveimur stigum. Þeir eru líka með hálft byrjunarlið íslenska landsliðsins í þeim Jón Arnóri, Jakobi og Helga Magnússyni. Síðan eru þeir með öflugan erlendan leikmann ásamt mörgum öðrum góðum innfæddum leikmönnum eins og Fannari, Pálma, Darra og Skarphéðni.
Grindavík vermir annað sætið, aðeins tapað fyrir KR eins og áður hefur komið fram. Þeir náðu sér í góða leikmenn fyrir mótið í þeim Brentoni og Arnari Frey. Síðan hefur Páll Axel verið við suðumark í flestum leikjum og sallað niður stigum. Einnig hefur Þorleifur Ólafsson verið drjúgur í stigaskorinu. Þeir eru líklegastir til að veita Vesturbæjarveldinu keppni þennan veturinn.
Jöfn í 3.-4. sæti eru Keflavík og Tindastóll. Keflvíkingar hafa oftast verið á þessum slóðum, við toppinn eða á honum. Stólarnir hinsvegar ekki eins heimavanir þar. Keflvíkingar eru án erlendra leikmanna og misstu þar að auki þá Arnar Frey og Magnús Gunnarsson frá sér í sumar. Fengu Hörð Vilhjálmsson í staðinn og Sverrir Þór Sverrisson. Þá hefur Sigurður Þorsteinsson komið sterkur til leiks og hefur tekið meira til sín en áður. Stólarnir tefla fram þremur erlendum leikmönnum, en að auki hefur bekkurinn eflst með Helga Rafni og Halli og Hreinsi eru árinu eldri og hafa tekið töluverðum framförum. Kiddi er líka farinn að þora að nota þá meira og er það bara ánægjulegt. Þó að Tindastóll hafi unnið fjóra af sex leikjum, hafa þeir ekki verið alltaf mjög sannfærandi. Besti leikurinn er líklega sigurleikur gegn Njarðvík á útivelli, en af þessum sex leikjum hafa fjórir verið á útivelli. Með þessum mannskap er þó margt í stöðunni og á góðu kvöldi er allt hægt.
Í sætunum 5 til 8 eru fjögur lið með 6 stig. Það eru Snæfell, Þór, Njarðvík og Breiðablik. Snæfell lét alla sína erlendu leikmenn fara auk þjálfarans og var liðið smá spurningamerki fyrir mót. Þeir hafa þó öfluga pósta í þeim Hlyn, Sigga Þorvalds, Jóni Ólafi og Magna. Stigaskor hefur ekki verið þeirra sterkasta hlið í haust, en öflugur varnarleikur eins og svo oft áður hefur fleytt þeim til þriggja sigra. Þórsarar leggja hinsvegar meira upp úr sóknarleiknum og hafa skorað tæp 87 stig að meðaltali í vetur. Þar fer fremstur Cedric Isom með tæp 31 stig í leik. Þór fékk Guðmund Jónsson frá Njarðvík og hann ásamt Óðni Ásgeirssyni hafa verið bestir það sem af er ásamt Isom.
Njarðvík hefur ekki byrjað nægilega vel. Valur Ingimundarson þjálfar þá og þeir Gunnarssynir, Logi og Magnús Þór gengu til liðs við þá. Þeir hafa unnið leiki sína gegn neðstu liðunum, en virðast lítið eiga í betri liðin eins og þeir eru að spila nú. Breiðablik er annað af nýliðum deildarinnar og hafa komið sterkir til leiks. Þeir þurftu að láta Darrell Flake frá sér og nutum við góðs af því. Þeir fengu hinsvegar Nemanja Sovic og hefur hann átt nokkra stórleiki fyrir þá. Breiðabliksliðið er ekki skipað neinum stjörnum, en virðast ná vel saman undir stjórn Einars Árna.
Í 9. og 10. sæti með fjögur stig og þarafleiðandi utan úrslitakeppni þó langt sé í hana eru Stjarnan og FSu. Stjarnan fékk leikstjórnandan Justin Shouse frá Snæfelli, en hann er mikill skorari. Jovan Zdravevski er áfram hjá þeim, en þessir tveir ásamt Fannari Helgasyni hafa borið lið Stjörnunnar uppi það sem af er. Þeir byrjuðu mótið vel. Töpuðu þó í framlengingu fyrir Grindavík á útivelli, en unnu síðan ÍR. Síðan hefur hallað undan fæti og þeir aðeins unnið Skallagrím eftir það. FSu komst í fyrsta sinn inn í úrvalsdeildina í vetur og þrátt fyrir aðeins tvö sigra í sex leikjum hafa þeir staðið vel í flestum liðum í tapleikjunum. Þeir leika hraðan körfubolta og eru vel þjálfaðir, en skortir enn reynslu enda nýliðar í deildinni. Þeir geta gert hvaða liði sem er skráveifu, sérstaklega á heimavelli. Þeirra aðalmenn í annars jöfnu liði eru Vésteinn Sveinsson og Sævar Sigurmundsson.
ÍR hefur aðeins unnið einn leik og því miður kom hann gegn okkar mönnum í 6. umferðinni. Þó þeir séu ekki með erlenda leikmenn eru þeir ágætlega mannaðir, en menn eins og Hreggviður Magnússon, Ómar Sævarsson og Sveinbjörn Claessen hafa allir þótt frambærilegir hingað til. Þá hefur gamla brýnið Eiríkur Önundarson leikið eins og unglamb það sem af er móti. ÍR situr í næst neðsta sætinu með 2 stig.
Neðstir án stiga er Skallagrímur. Þeir þurftu að láta sína erlendu leikmenn fara fyrir mót og síðan ákvað þeirra erlendi þjálfari að fara sömu leið. Lítill hópur og meiðsli lykilmanna hefur ekki skilað árangri eins skiljanlegt er. Þorsteinn Gunnlaugsson hefur verið sterkastur þeirra hingað til, en hann hefur ákveðið að hvíla keppniskóna í bili. Útlitið var því orðið dökkt og þrátt fyrir góðan fyrri hálfleik gegn Njarðvík í síðasta leik var ljóst að þetta gengi ekki til lengdar. Því hafa stuðningsmenn Skallagríms efnt til söfnunar fyrir tveimur erlendum leikmönnum og er annar þeirra mættur til landsins. Sá er ekki ókunnugur íslenskum körfubolta, en Igor Beljanski hefur undanfarin ár leikið með Grindavík og Njarðvík. Hann verður jafnframt þjálfari liðsins. Hinn heitir Miroslav Andonov. Þeir gætu því farið að stríða liðum eitthvað á næstunni, en vonum að þeir fari ekki að taka upp á því í kvöld.
JS.