MYNDIR
09. apríl 2013
skķši 034.jpg
09. apríl 2013
skķši 065.jpg
09. apríl 2013
dekk 017.jpg

 

Íþróttahúsið á Sauðárkróki, Tindastóll : KR 96:94

Pistill frá fastagesti.

Íþróttahúsið á Sauðárkróki, Tindastóll : KR 96:94

 

?Þetta er náttúrlega bara botnlaus helvítis hamingja? eins og karlinn sagði, - að leggja Íslandsmeistarana, og ekki bara það, heldur KR af öllum liðum, í síðasta heimaleiknum í deildinni á þessum vetri. Auðvitað mátti búast við erfiðum leik, annarsvegar annað af toppliðunum með valinn mann í hverju rúmi, á móti Tindastólsliðinu þar sem einn úr áhöfninni hafði afmunstrað sig og aðeins níu leikmenn á skrá.

Og sannanlega var munur að sjá til liðanna í upphituninni, rosaleg stemming í KR liðinu, leikmenn virtust gíra sig upp í mikinn hraða og leikgleði og öll skot virtust smellhitta í körfuna. Hinum megin lið Tindastóls þar sem allt virtist fara mun hægar, engin hróp eða köll, ekki að sjá neinn hasar eða læti og hittnin virtist ekkert vera hvorki betri né verri en vanalega.

Kári Mar sagði að líklegt væri að KR ingarnir yrðu ekki ánægðir nema leikurinn ynnist með svona 30 ? 40 stiga mun, þeir ætluðu sér áreiðanlega að nota þennan leik til að tjúna sig upp fyrir úrslitakeppnina.

Þannig að sjálfsagt hafa flestir búið sig undir það, að verulega yrði þungt fyrir fæti hjá heimamönnum, en auðvitað vonað hið besta.

Og leikurinn hófst, og nú blasti við allt annar veruleiki á gólfinu, heldur en nokkrum mínútum áður. Tindastólsmenn léku við hvern sinn fingur, spiluðu fína vörn, sendingarnar góðar og skotin rötuðu beint í hringinn á meðan hver sóknin af annari hjá gestunum brotlenti á sterkri vörn, sem neyddi þá í mjög erfið skot eða þeir misstu boltann, og eftir tveggja mínútna leik var staðan orðin 14:4 og Benedikt þjálfari KR tók leikhlé. ?Á dauða mínum átti ég von, en ekki því að þeir neyddust til að taka leikhlé eftir rúmar tvær mínútur? stundi einn í stúkunni, ? en þetta er fínt, láta þá hafa fyrir hlutunum?, bætti hann við og settist aftur.

En leikhléið breytti litlu, ráðaleysið var algjört í sóknarleik gestanna, á meðan heimamenn virtust skemmta sér hið besta voru afslappaðir en agaðir bæði í varnar-leiknum og sókninni á meðan mótlætið virtist strax farið að pirra gestina. Þegar sex og hálf mínúta var liðin af þessum leikhluta var munurinn enn um tíu stig og aftur tóku gestirnir leikhlé. ?Jeeeeess? sagði sá sem áður átti von á dauða sínum, ?þetta setur á þá pressu, á þessu áttu þeir ekki von? en lítið breyttist enn, en þó höfðu KR-ingar náð að naga forskot heimamanna niður í sjö stig 30:23 við lok leikhlutans.

Í öðrum leikhlutanum fór þjálfari gestanna að skipta inn leikmönnum og reyna að brjóta upp leik Stólanna, en það fór allt á sömu leið, Kiddi keyrði enn á byrjunarliðinu sem lét engan bilbug á sér finna og þegar fjórar mínútur voru eftir til hálfleiks var staðan 48:33 fyrir Tindastól og nú fóru áhorfendur, sem eins og alltaf voru allt of fáir, að láta til sín heyra. Gestirnir reyndu að keyra upp hraðann, og léku á köflum mjög fast en uppskáru aðeins brot og villur, og núna klikkuðu ekki vítaskotin hjá heimamönnum. Í hálfleik var staðan enn tíu stig í plús, 55:45.

Í leikhléinu skeggræddu menn um leikinn, og voru býsna ánægðir, en voru þó ekki nægilega bjartsýnir á að úthaldið nægði í seinni hlutann, töldu líka að nú mundi lesið yfir toppliðinu í búningsklefa, sem koma mundi grenjandi vitlaust í seinni hálfleik, - ?en þó að við töpum ? kannski ? þá valta þeir ekkert yfir okkur? sagði einn og kláraði úr kaffiboxinu.

Og það var ljóst að gestirnir úr Vesturbænum ætluðu sér ekki að fara án stiga suður yfir heiðar, þegar leikurinn hófst á ný, og smátt og smátt söxuðu þeir niður forskotið, Joshua Buetner varð að fara af velli þar sem einhversstaðar blæddi úr honum, og Halldór Halldórsson kom inn í hans stað, en það var fyrsta skipting heimamanna.  Halldór var svo inni nokkurn tíma og hinir leikmennirnir skiptu og fengu þar örstuttar pásur hver en um miðjan leikhlutan náðu gestirnir að komast yfir 61:62, en til loka þessa leikhluta var allt í jafnvægi staðan 68:68, örfáar sekúndur eftir, við með boltann, en skotið náðist ekki og KR ingar brunuðu í sóknina og náðu að skora rétt um leið og tíminn var úti. 68:70 við upphaf síðasta hluta.

Loksins voru áhorfendur orðnir vel með á nótunum og hvöttu Tindastólsmenn vel áfram og síðasti leikhlutinn var á háspennu, þar sem liðin skiptust á um að leiða með einu eða tveim stigum og allt gat gerst og var frumkvæðið lengstum heimamanna. Þegar sautján sekúndur voru eftir, staðan 85:83 við með boltann og gátum gert út um leikinn, þá gerðist það, enda Tindastólsmenn orðnir örþreyttir, að Pálmi Sigurgeirsson náði að stela boltanum og gaf langa sendingu á Fannar sem skoraði örugglega og jafnaði og knúði þannig fram framlengingu.

Nú virtust erfiðar fimm mínútur framundan, en það var ekki að sjá á Tinda-stólsliðinu, að þeir hefðu verið að ljúka heilum leik, því fyrstu sjö stigin voru þeirra án þess að gestirnir næðu að svara, staðan 92:85 og enn tók KR leikhlé, enda virtist stefna verulega í óefni hjá þeim.En nú höfðu heimamenn misst taktinn og næstu átta stig skoruðu KR- ingar og lítið eftir af leiknum og allt í einu var staðan orðin 92:93 og nú var verulega farið að fara um áhorfendur, en lokasekúndurnar voru Tindastóls sem kláraði leikinn 96:94 við gífurleg fagnaðarlæti áhorfenda.

Um leikmenn Tindastóls er ekki hægt að segja nema eitt, þeir léku frábærlega, allir sem einn, og verður enginn þar undan skilinn. Þarna léku þeir varnarleikinn sem stundum hefur vantað í vetur ? allan tímann og gáfu engin færi á sér, vítahittnin var mjög góð, og fráköstin lentu mun oftar hjá heimamönnum en gestunum og sóknirnar voru vel útfærðar og enduðu undantekningarlaust með skoti.

Ekki verður rætt um þennan leik svo ekki sé minnst á ungu krakkana, sem sátu á fremstu bekkjunum nyrst, og eiga heiður skilinn, þau héldu stöðugt uppi dampinum með hrópunum ?Áfram Tindastóll,? og náðu því nú loksins að þeir fullorðnu, sem oftastnær sitja eins og frosnir voru farnir að taka undir og hvetja, eins og full þörf hefði verið á oftar í vetur, því góður stuðningur af bekkjunum er verulegur stuðningur sem ekkert lið getur án verið.

En sem sagt, þetta var frábær endir á ágætum körfuboltavetri ? kannski, kannski er úrslitakeppnin ekki úr sögunni, en það skiptir bara engu máli, okkur var afgerandi spáð neðsta sæti í deildinni og falli, en liðið hefur sýnt það að jafnvel Íslandsmeistarar geta ekki komið á Krókinn og klárað hér leik með aðra hendina í vasanum, - ég hef margoft sagt við getum unnið hvaða lið sem er, - og sætið í deildinni er tryggt þannig að vel má við una.

Þjálfari og leikmenn Tindastóls, bestu þakkir fyrir frábærlega skemmtilegan vetur hér í íþróttahúsinu á Sauðárkróki, og svo er bara að vinna Stjörnuna sannfærandi. ? Maður þarf ekki fleiri hjartatékk í vetur.

 

Kveðja,  Fastagestur.

 
DAGSKRĮ
Maķ 2013
SMŽMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNśnaNęsti
 
SPJALLIŠ
Taktu žįtt ķ spjallinu, segšu žķna skošun, leggšu eitthvaš til mįlanna.
Skoša >>
Lokastaðan í deildinni 2012/2013
# Félag
u/t
Stig
1 Grindavík

14/4

28
2 Þór Þ 16/6 32
3 Snæfell 16/6 32
4 Stjarnan 15/7

30

5 Keflavík 13/9 26

6

Njarðvík

12/10

24
7 KR

11/11

22
8 Skallagrímur  7/11 14
9 ÍR  6/16 12
10 KFÍ 6/16 12
11 Tindastóll  6/16 12
12 Fjölnir

 5/17

10
          ks  Sp Sk.        Landsbanki        VÍS TengillFjölnet
UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 650269-5949