|
|
Pistlar | 09. janúar 2008 Tindastóll - Hamar.Tindastóll ? Hamar. Ég hélt að það hefði nú verið meiningin að vinna þennan leik, en svona fór þetta enn einu sinni, naumt ömurlegt tap á síðustu sekúndunum, og auðvitað eru allir hundsvekktir, og þá sjálfsagt ekki hvað síst þjálfari og leikmennirnir sjálfir. Okkar menn byrjuðu með látum og skoruðu átta stig áður en Hamrarnir náðu að svara fyrir sig og komast á blað, og það lá einhvernveginn í loftinu býsna mikil leikgleði og vilji í liðinu. Í fyrsta leikhlutanum vorum við þetta átta til tíu stigum á undan, en strax í öðrum hlutanum sölluðu þeir forskotið niður í þrjú stig með tveim þristum, og til hálfleiks vorum við þó skrefinu á undan, en í hálfleik skildi liðin heilt eitt stig. Fram í miðja þriðja hluta hélst ástandið svipað en þá áttu strákarnir góðan sprett og staðan var 71:62 við upphaf lokahluta leiksins. Ljóst var að eitthvað var ekki í lagi þegar þessi leikhluti hófst og fyrstu fjórar körfurna voru Hamarsmanna og staðan var allt í einu orðin 71:70, en þá setti Samir niður þrist og síðan kom góður kafli og við náðum aftur svolítilli forystu 79:71 og lítið eftir af leiknum og menn voru farnir að gera því skóna að stigin væru í höfn, en þá dundi ógæfan yfir, Ísak kominn útaf með fimm villur og litlu síðar Poppe rotaður. Gestirnir gengu á lagið og á síðustu sekúndunum náðu þeir að knýja fram þriggja stiga sigur. Það vantaði einhvernveginn neistann og viljann til að vinna í þessum leik, og það virðist líka eitthvað vera að í útlendingahópnum. Þeir virtust ekki ná saman til að spila eins og lið sérstaklega í lokin, og enn gerðist það á síðustu sekúndunum, þegar mest lá við að Samir var ekki að sjá, - eða vildi ekki sjá, - dauðafría menn og reyndi svo annað hvort vonlaus skot eða spilaði sig í ógöngur og missti boltann. Hinsvegar áttu þeir Svavar og Perre nokkuð góðan dag og Brown nuddaði niður fimmtán stigum, en virðist langt frá því eins frískur og var fyrst í haust. Ísak fékk á sig þrjár villur snemma leiks og átti því erfitt uppdráttar og það sáu gestirnir og nýttu sér í hörgul. En þessi leikur er frá. - Loksins kom trommugengið og stóð sig frábærlega, svona þarf þetta að vera á hverjum leik, svo þyrfti að reyna að stjórna því hvar áhorfendur eru, það verður einhvernveginn svo lítill slagkraftur í hvatningunni ef þeir sem hvetja, eru hér og hvar í húsinu og ná ekki saman. ( bekkurinn mætti líka láta í sér heyra þegar þörf er á að áhorfendur vakni af dvalanum ) En nóg um þetta. Næsti leikur verður að vinnast og svo áfram, en tökum einn leik í einu, og látum það ekki henda að heimaleikirnir endi með þessum ósköpum. Reynum að hvetja fleiri til að mæta, það er alltaf gaman ? svolítið misgaman þó, - að horfa á leik í íþróttahúsinu, hvetjum strákana, þeir þurfa að fá öfluga hvatningu og við ætlum okkur ekkert annað en öruggt sæti í Úrvalsdeildinni áfram. Kveðja Fastagestur, |
Lokastaðan í deildinni 2012/2013
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||