MYNDIR
09. apríl 2013
kįtir krakkar.jpg
09. apríl 2013
skķši 020.jpg
09. apríl 2013
skķši 012.jpg

 

Tindastóll : Keflavík.

Pistill frá fastagesti.

Tindastóll : Keflavík.

 

Það var ekki að sjá að áhorfendur ætluðu að flykkjast í íþróttahúsið til þess að sjá viðureign heimamanna við efsta lið deildarinnar, því að þegar leikur hófst voru um fjörutíu áhorfendur á svæðinu, og lítið tilstand. Leikmenn liðanna voru ekki kynntir, hvað þá dómararnir, engir til að berja trommurnar og lukkudýrið hvergi. Kannski voru einhverjir að hlusta á þá Álftagerðisbræður, sem voru að kynna nýja diskinn sinn, en líklega er þetta bara áhugaleysi.

En þetta er einfaldlega ekki ásættanlegt.

Þegar leikurinn byrjaði voru okkar menn frískir og ágætlega sprækir, gáfu ekkert eftir, en réðu hinsvegar illa við Walker, sem skoraði 15 stig í þessum hluta, körfur í öllum regnbogans litum, og 7 stiga forskot Keflvíkinga 19:26 var staðan eftir þennan fyrsta hluta.

Gestirnir héldu forystunni, mest tíu stig, en náðu aldrei að skapa sér svigrúm til eins eða neins. Undir lok hálfleiksins áttu Samir og Ísak sína hvora þriggja stiga körfuna og með harðfylgi tókst okkar mönnum að skora rétt undir lokin og jafnt var 45:45 í hálfleik.

Eitthvað hefur Kiddi sagt gott við strákana í klefanum, því að nú tóku þeir forystuna og héldu henni nánast út þennan þriðja leikhluta, en nú var það Tommy Johnson hjá gestunum sem, undir lok þessa hluta, var allt í öllu og inn í fjórða og síðasta leikhlutann komust Keflvíkingar með tvö stig í plús 62:64.

Þessu forskoti héldu þeir lengst af, mest varð munurinn 10 stig, og þar var Gunnar Einarsson á ferðinni, en hann hefur nú oftar en ekki verið Tindastólsmönnum erfiður, en í lokin kom góður kafli hjá okkar mönnum og þeir skoruðu grimmt á meðan lítið gekk hjá Keflvíkingum, og þegar upp var staðið var sigurinn tvö stig Keflvíkinga, 87:89.

Segja má að leikur og barátta Gunnars hafi skapað sigur gestanna.

Í liði Tindastóls var Brown mjög sterkur, Samir átti ágætan leik, en eins og stundum hefur sést þegar lítið er eftir, þá leika menn sig í vandræði, og láta boltann ekki ganga og sóknin rennur út í sandinn, eða boltinn tapast af því að menn ætla sér að gera hlutina sjálfir.

Svabbi átti góðan dag, 18 stig, - fínt, og líka Ísak, en hann þyrfti að skila fleiri stigum, 6 er alltof lítið fyrir fína skyttu, og góðan leikmann. Poppe var fyrirferðarlítill, og hann verður að fara að gera eitthvað meira en hann sýndi í þessum leik. Helgi Rafn var góður, leikmenn eins og hann, sem koma sem gestir hingað, eru þeir sem ergja okkur áhorfendur mest og slíkur maður er góður í okkar liði, enda þurfa andstæðingarnir verulega að hafa fyrir honum, og 8 stig er vel ásættanlegt fyrir leikmann sem er að koma inn eftir nokkurt hlé. Halldór átti stutta en fína innkomu, auðvitað raða ungu strákarnir á sig villum, en Halldór var alveg ófeiminn við gestina og gaf hvergi eftir.

Dómararnir Einar Þór og Lárus voru hreint afleitir, en líklega mismunuðu þeir ekki liðunum svo mjög, en auðvitað fannst okkur að hallaði á okkar menn, að minnsta kosti voru báðir þjálfararnir alveg húðvondir mestallan tímann.

En aftur að upphafinu. Hvernig hefði þessi leikur farið, ef við hefðum ekki verið með steindauðan sal, þar sem menn sátu eins og dæmdir nánast frá upphafi til enda leiks. Það var rétt undir blá lokin sem blóðið virtist fara að hreyfast í hópnum og menn létu heyra í sér.

Þetta er annar leikurinn sem við töpum og missum af stigum með minnsta mun en í leiknum gegn Skallagrími má fullyrða að gríðargóð stemming og hvatning áhorf-enda hafi fleytt okkar mönnum til sigurs í erfiðri framlengingu.

Um helgina koma Keflvíkingar aftur, og nú til að leika um bikarinn.

Hvernig er það körfuknattleiksdeild, - er nú ekki tími til að auglýsa leikinn vel, hvetja alla til að koma,- minnsta kosti að reyna, - sjá um að trommurnar séu á sínum stað, sjá um að einhverjir leiði hvatninguna, - jafnvel með hátalara, það má að minnsta kosti í handboltanum, skapa nú stemmingu. Við ætlum okkur ekkert að falla, við ætlum okkur í úrslitin og ekkert minna, en til þess þurfa strákarnir að finna, bara pínulítinn áhuga frá okkur hinum. Það er alveg tími til að snúa hlutunum við

Við eigum fínt lið, sem var að þessu sinni hársbreidd frá því að vinna efsta liðið, sem hefur fram til þessa varla stigið feilspor, og við viljum sjá Kidda koma inná, átti hann ekki einhver 17 stig í útileik um daginn, kannski hefði einn þriggja stig nægt á heimavelli um síðustu helgi.

 

Kveðja. Fastagestur

 
DAGSKRĮ
Maķ 2013
SMŽMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNśnaNęsti
 
SPJALLIŠ
Taktu žįtt ķ spjallinu, segšu žķna skošun, leggšu eitthvaš til mįlanna.
Skoša >>
Lokastaðan í deildinni 2012/2013
# Félag
u/t
Stig
1 Grindavík

14/4

28
2 Þór Þ 16/6 32
3 Snæfell 16/6 32
4 Stjarnan 15/7

30

5 Keflavík 13/9 26

6

Njarðvík

12/10

24
7 KR

11/11

22
8 Skallagrímur  7/11 14
9 ÍR  6/16 12
10 KFÍ 6/16 12
11 Tindastóll  6/16 12
12 Fjölnir

 5/17

10
          ks  Sp Sk.        Landsbanki        VÍS TengillFjölnet
UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 650269-5949