MYNDIR
05. ágúst 2010
Kroksmot2010.jpg
08. ágúst 2010
IMG_7941.jpg
17. júlí 2010
IMG_7477.jpg
Vinstri dálkur 

Orðsending til stuðningsmanna

Þær fréttir úr herbúðum karlanna eru helstar þær,að  meiðsli hafa verið að hrjá okkar leikmenn og eru því  nokkrir leikmenn, í meiðslum, eða að koma úr meiðslum.

Kristmar Geir eða Marri verður  aðstoðarþjálfari,  mfl og 2fl.  Fagna ég því að fá hann til starfa, því kallinn er mikill reynslubolti og góður stuðningur  við mig, varðandi þjálfun, á þessum stóra hóp, en alls eru 35 leikmenn í þessum tveim flokkum.

Leikmannahópurinn hefur breyst nokkuð frá síðasta sumri og tók ég þá ákvörðun að sækja senter sem gæti skilað okkur 12-15 mörkum í sumar. Kristinn Aron Hjartarson er nýr leikmaður og hefur hann farið á kostum í markaskorun í vetur og vor eða leikið 11 leiki og skorað 17 mörk í þeim. Kristinn hefur ekki verið með okkur í þrjár vikur  og er hann að fara í hnéaðgerð í dag, fimmtudag og verður klár í þriðja eða fjórað leik.  Vegna meiðsla Kidda, hafði ég samband við annan skorara, Sigurjón Jónsson sem spilaði með okkur við Ægismenn fyrir nokkru og skoraði hann bæði mörkin í öruggum sigri okkar.  Sigurjón eða Sjonni, verður ekki með okkur í fyrsta leik vegna meiðsla en hann er á góðum batavegi og verður vonandi með okkur í erfiðum útileik á móti varaliði Leiknis sem heitir KB.

Almar Viðarsson  og Arnar tenniskappi Sigurðsson eru einnig nýir leikmenn sem höfðu samband í  vor og spiluðu nokkra leiki með okkur og stóðu sig vel.  Þessir þrír leikmenn, Sjonni, Almar og Arnar verða búsettir í Reykjavíkursvæðinu og ef þeir verða boðaðir í leiki þá koma þeir og aðstoða okkur, klúbbnum að kostnaðarlausu. Kiddi mun hinsvegar flytja með fjölskyldu sína  á Krókinn.

Líkamlegt form leikmanna mætti vera betra, en þrátt fyrir það, þá er stefnan skýr, liðið skal upp aftur og verður það markmið okkar allra, stuðningsmanna, stjórnar og að sjálfsögðu leikmanna sem ætla að leggja allt undir í þeim efnum.

Riðillinn sem við eru í, er mjög jafn og ekkert lið sem er lélegt, en Grundarfjarðarliðið er kannski það lið sem ég tel veikast. Lið Skallagríms leit ekki vel út í byrjun, en þeir hafa fengið talsvert af fínum spilurum frá Akranesi, núna síðustu daga, eins og reyndar öll hin liðin, Léttir leikmenn frá ÍR, Augnablik frá Breiðablik og  Ýmir leikmenn frá HK. Varalið Leiknis heitir KB og er það sterkasta liðið og verða erfiðir. Sem sagt allt spennandi leikir þar sem hvert stig og jafnvel hvert mark, gæti gert gæfumuninn.

Það er einlæg ósk mín sem þjálfara þessa ágæta liðs, sem skipað er nánast heimamönnum með stórt félagshjarta,  að sem flestir mæti á völlinn og styðji  liðið vel og dyggilega í þeirri baráttu sem framundan er.

Ég vil að lokum vekja athygli á góðu liði mfl. Kvenna og 2fl. Karla sem ég  veit að ætla að leggja sig alla fram í sumar.

 
DAGSKRĮ
September 2010
SMŽMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNśnaNęsti
 
SPJALLIŠ
Taktu žįtt ķ spjallinu, segšu žķna skošun, leggšu eitthvaš til mįlanna.
Skoša >>
Iceland Express
Staðan í deildinni 2009/2010
# Félag
u/t
Stig
1 KR 18/4 36
2 Keflavík  17/5 34
3 Grindavík  16/6 32
4 Stjarnan  15/7 30
5 Njarðvík 15/7 30

6

Snæfell

14/8

28
7 Tindastóll 9/13 18
8 ÍR  8/14 16
9 Fjölnir  7/15 14
10 Hamar  7/15 14
11 Breiðablik  5/17 10
12 FSu  1/21 2
          ksArion banki  Sp Sk.        Lýsing   Landsbanki        VÍS
HEIMASÍÐA TINDASTÓLLS ER KEYRÐ Á SMALA xL 2
UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 723470-7649