MYNDIR
09. apríl 2013
skíði 040.jpg
09. apríl 2013
skíði 047.jpg
09. apríl 2013
skíði 066.jpg

 

Pistlar

  1-20 af 20  
KlukkanDagsetningFréttHöfundur
22:53 20. maí 2010  

Orðsending til stuðningsmanna

Kæru stuðningsmenn. Íslandsmótið í knattspyrnu hjá Mfl. Karla, hefst 22 maí eða á næsta laugardag, með leik Tindastóls og Grundarfjarðar. Hjá Mfl.kvenna hefst mótið á næsta mánudag á leik við líklegasta sterkasta liðið í riðlinum, Þrótt Rvk.
gaui
18:32 14. nóv. 2008  

Hugleiðingar eftir sex umferðir í IE deildinni.

Sex umferðum er lokið í Iceland Express deild karla og klárast sú 7. í kvöld. Að loknum þessum fyrstu umferðum situr KR í toppsætinu, nokkuð sem kemur ekkert sérstaklega á óvart. Þeir hafa ekki enn tapað leik, komust þó nálægt því gegn Grindavík, en unnu með tveimur stigum.
Johann
14:27 20. okt. 2008  

Erum við ekki í keppni?

Pistill eftir Svein Brynjar Pálmason.

Undanfarið hefur skapast frekar leiðinleg og neikvæð umræða um íslenskan körfubolta sem þarf að eyða. Þessi umræða hefur að sjálfsögðu snúist um það hverjir eru með útlendinga og hverjir ekki og jafnvel farið í það að gagnrýna lið sem eru með sterka íslenska leikmenn. En þetta snýst bara alls ekki um það, við erum í keppni þar sem hver og ein stjórn og hvert félag reynir að búa til nógu sterkt lið til að skáka hinum óháð því hvaðan menn koma og hverjir þeir eru.
Johann
09:27 10. okt. 2008  

Íþróttasvæðið á Sauðárkróki

pistill frá formanni Tindastóls

Fyrir tæpu ári síðan kynntum við framtíðarsýn okkar þar sem við hugsuðum um fjölnotahús, sundlauga- og skemmtigarð, aðstöðu fyrir íþróttir og hreyfingu og þjónustu þeim tengd.  Hugmyndirnar gengu út frá því að menningarhús yrði reist á Flæðunum við hlið sundlaugarinnar.  Okkar hugmyndir gerðu tilraun til að tengja Flæðarnar  við skólasvæðið.

Í vor komu á fund aðalstjórnar fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar.  Þeir kynntu okkur hugmyndir um að menningarhús yrði tengt Árskóla og byggt á syðsta vellinum á íþróttasvæðinu.  Þeir óskuðu eftir viðbrögðum og tillögum frá okkur í framhaldi af þessari kynningu.  Í sumar höfum við skoðað málið og ákváðum að skynsamlegt væri að skoða málið í heild alveg frá byrjun og skoða hvernig við sjáum íþróttasvæðið í framtíðinni.

Meðfylgjandi mynd er niðurstaðan okkar.  Við tilgreinum ákveðin svæði fyrir æfingasvæði, keppnissvæði og byggingarreiti.  Okkur fannst eðlilegt að horfa á skólasvæðið og umferð í þessu sambandi.  Nánari skýringar á myndinni eru;

·         Byggingarreitur fyrir íþróttahús er nægjanlega stór til að koma fyrir fjölnotahúsi með knattspyrnuvelli í fullri stærð ásamt hlaupa- og stökkbrautum.

·         Byggingarreitur fyrir sundlaug hýsir bæði keppnis- og kennslulaug ásamt sundlauga- og skemmtigarði.  Á þessu svæði sjáum við fyrir okkur þjónustu við golfvöll og tjaldstæði. 

·         Búningsklefa má samnýta með íþróttahúsum sem gerir okkur kleift að nýta hluta af aðstöðunni í gamla íþróttahúsinu eingöngu fyrir Árskóla. 

·         Ytri völlur á núverandi æfingasvæði verði stækkaður í löglega keppnisstærð og gert ráð fyrir að hann geti orðið gervigrasvöllur í framtíðinni.

·         Nýtt æfingasvæði verði gert á Nöfunum fyrir ofan byggingarreit fyrir sundlaugina.  Þetta svæði verði nógu stórt til að hafa sex knattspyrnuvelli í fullri stærð.  Svæðið ætti því að duga félaginu sem framtíðarsvæði til æfinga og mótahalds.

·         Nýtt tjaldstæði getur verið bæði í Grænuklauf og við Sauðárgil. 

·         Golfvöllur getur náð suður að nýja æfingasvæðinu og niður að Nöfunum.

·         Ný akstursleið frá Hlíðarhverfi niður á Skagfirðingabraut.  Leiðin liggur í stokk undir fjölnotahús og menningarhús og tengist hringtorgi á Skagfirðingabraut.  Þetta gefur okkur möguleika á að endurskoða alveg umferðarmálin í kring um skólabyggingarnar og breyta núverandi bílastæði við Íþróttahús í leiksvæði fyrir börnin í Árskóla.

Við sjáum fyrir okkur að jarðvegurinn sem fjarlægja þarf úr Nöfunum verði nýttur í nýjan veg, jöfnunar á æfingasvæði og til að mynda landslag á Nöfunum til skjóls og skrauts.  Tilvalið væri að hefja strax plöntun skjólgróðurs miðað við þetta skipulag.

Okkur þætti vænt um að heyra frá almenningi, svo endilega sendið okkur ykkar skoðanir í tölvupóst á netfangið tindastoll@tindastoll.is.

 

Hér er hægt að nálgast teikningu á pdf formi.

 

Fyrir hönd aðalstjórnar UMF Tindastóls

Gunnar Þór Gestson, Formaður

 

 

 

Jakob
13:18 15. mars 2008  

Íþróttahúsið á Sauðárkróki, Tindastóll : KR 96:94

Pistill frá fastagesti.

Þetta er náttúrlega bara botnlaus helvítis hamingja? eins og karlinn sagði, - að leggja Íslandsmeistarana, og ekki bara það, heldur KR af öllum liðum, í síðasta heimaleiknum í deildinni á þessum vetri. Auðvitað mátti búast við erfiðum leik, annarsvegar annað af toppliðunum með valinn mann í hverju rúmi, á móti Tindastólsliðinu þar sem einn úr áhöfninni hafði afmunstrað sig og aðeins níu leikmenn á skrá.
Óli
11:04 22. feb. 2008  

Aðalfundur Tindastóls 21. febrúar

Vel hepnuðum fundi lokið

Í gærkvöldi var að aðalfundur Ungmennafélagsins Tindastóls haldinn á Mælifelli. Fundurinn var með aðeins nýju sniði því þar var einnig tilkynnt um kjör íþróttamanns Tindastóls, ásamt venjulegra aðalfundastarfa.
Óli
09:26 30. jan. 2008  

Tindastóll - Fjölnir.

Pistill frá fastagesti.

Leiðinlegt að ekki fleiri áhorfendur skyldu fá að njóta þess að sjá liðið okkar Tindastól spila skemmtilegan leik og vinna sannfærandi sigur, og þó hafði maður það á tilfinningunni að margir leikmenn ættu heilmikið inni.
Óli
08:31 09. jan. 2008  

Tindastóll - Hamar.

Ég hélt að það hefði nú verið meiningin að vinna þennan leik, en svona fór þetta enn einu sinni, naumt ömurlegt tap á síðustu sekúndunum, og auðvitað eru allir hundsvekktir, og þá sjálfsagt ekki hvað síst þjálfari og leikmennirnir sjálfir.
Óli
21:23 06. des. 2007  

Tindastóll : Keflavík.

Pistill frá fastagesti.

Það var ekki að sjá að áhorfendur ætluðu að flykkjast í íþróttahúsið til þess að sjá viðureign heimamanna við efsta lið deildarinnar, því að þegar leikur hófst voru um fjörutíu áhorfendur á svæðinu, og lítið tilstand. Leikmenn liðanna voru ekki kynntir, hvað þá dómararnir, engir til að berja trommurnar og lukkudýrið hvergi.
Óli
12:21 01. des. 2007  

Frjálsíþróttir í Skagafirði 2006-2007

 

Í þessum pistli verður stiklað á stóru yfir helstu viðburði í frjálsíþróttalífi Skagfirðinga á keppnistímabilinu 2006-2007.

Frjálsíþróttalið UMSS er afar ungt að árum, en íþróttafólkið er iðið við æfingar og kappsfullt í keppni, enda eru framfarir miklar.  Flestir æfa hjá UMF Tindastól, undir stjórn Gunnars Sigurðssonar, þar hefur orðið mikil fjölgun í haust og telur hópurinn nú nálægt 80 iðkendur.

 

Meistaramót Íslands, í öllum aldursflokkum, gáfu af sér 7 gull, 17 silfur og 6 brons.

Íslandsmeistarar urðu:

MÍ 12-14 inni

Kolbjörg Katla Hinriksdóttir

800m

13

2:41,79

mín

MÍ 15-22 inni

Linda Björk Valbjörnsdóttir

60m grind

15-16

9,31

sek

MÍ 12-14

Jóhann Björn Sigurbjörnsson

60m

12

9,00

sek

 

Jóhann Björn Sigurbjörnsson

langstökk

12

4,70

m

MÍ 15-22

Linda Björk Valbjörnsdóttir

80m grind

15-16

12,54

sek

 

Linda Björk Valbjörnsdóttir

300m grind

15-16

45,64

sek

MÍ aðalhluti

Gauti Ásbjörnsson

Stangarstökk

karla

4,10

m

 

Íslandsmet, sem Skagfirðingar settu á keppnistímabilinu, voru fimm talsins. 

18.11.2006

Linda Björk Valbjörnsdóttir

200m hlaup ih.

13-14

26,84

sek

15.06.2007

Árni Rúnar Hrólfsson

Fimmtarþraut

15-16

2863

stig

22.07.2007

Gauti Ásbjörnsson

Stangarstökk

21-22

4,50

m

29.07.2007

Linda Björk Valbjörnsdóttir

400m grind

15-16

62,69

sek

29.07.2007

Linda Björk Valbjörnsdóttir

400m grind

17-18

62,69

sek

 

Landsmót UMFÍ var haldið í Kópavogi 5.- 8. júlí.

Lið UMSS, sem skipað var 9 keppendum, hafnaði í 8. sæti af 20 keppnisliðum, 1 gull vannst, 2 silfur og 3 brons, en Gauti Ásbjörnsson varð Landsmótsmeistari í stangarstökki. 

 

Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Hornafirði um verslunarmannahelgina.

14 þátttakendur voru frá UMSS og unnu þau 1 gull, 2 silfur og 5 brons, en Linda Björk Valbjörnsdóttir varð Unglingalandsmótsmeistari í 100m hlaupi (15-16).

 

Landslið Íslands keppti í 2. deild Evrópubikarkeppninnar í Odense í Danmörku í júní.

Í liðinu voru 3 Skagfirðingar, Linda Björk Valbjörnsdóttir sem þreytti frumraun sína með landsliðinu, Gauti Ásbjörnsson og Ragnar Frosti Frostason.  Öll hafa þau nú verið valin í landsliðshóp FRÍ fyrir 2008.

 

Norðurlandameistaramót unglinga, 19 ára og yngri, fór fram í Esbjerg í Danmörku í september.

Linda Björk Valbjörnsdóttir var valin til keppni þar í sameiginlegu liði Íslendinga og Dana.

 

Bikarkeppni FRÍ, 2. deild, fór fram um miðjan september.  Þar kepptu lið UMSS og sameiginlegt lið Akureyringa og Eyfirðinga um sæti í 1. deild á næsta ári.  Leikar fóru svo að Skagfirðingar sigruðu, hlutu 41 stig gegn 36 stigum keppinautanna, og unnu því aftur sæti í efstu deild.

 

Bikarkeppni unglinga, 16 ára og yngri, fór fram í septemberbyrjun.

Lið UMSS hafnaði í 5. sæti af 13 liðum.

 

Heimsleikar unglinga í Gautaborg voru haldnir í júlí.  Þangað fór hópur úr Skagafirði með 13 keppendum.  Það var auðvitað hið mesta ævintýri fyrir krakkana að keppa á þessu stórmóti með um 3000 keppendum.  Margir bættu árangur sinn verulega, en auk keppninnar, var þessi ferð hin besta skemmtun.

 

Úrvalshópur unglinga FRÍ, sem unglingalandsliðsþjálfari FRÍ velur, er vettvangur fyrir þjálfarann til að hafa áhrif til eflingar á þjálfun efnilegustu unglinga landsins.  Nú eru 3 Skagfirðingar í hópnum, Árni Rúnar Hrólfsson, Halldór Örn Kristjánsson og Linda Björk Valbjörnsdóttir.

 

Afrekshópur unglinga FRÍ er fámennur hópur þeirra unglinga sem að dómi unglingalandsliðsþjálfarans eiga möguleika til að komast í allra fremstu röð í heiminum í frjálsíþróttum.  Í hópnum nú er Linda Björk.

 

Mótahald í Skagafirði var fjölbreytt að vanda.  Stærstu verkefnin í sumar voru MÍ-aðalhluti og Bikarkeppni FRÍ, 2. deild, sem fram fóru á Sauðárkróksvelli.  Önnur stór mót voru Grunnskólamót innanhúss og utan, Landsbankahlaup, Vormót UMSS, Fimmtarþrautarmót UMSS og Norðurlandsleikar unglinga.  Framkvæmd mótanna krefst mikillar vinnu, en hér í Skagafirði er stór hópur af reyndu og duglegu fólki, sem ávallt er tilbúið til starfa þegar eftir er leitað, þessu fólki eru færðar kærar þakkir.

 

(ÁK)

 

 

 

 

 

Óli
10:23 12. nóv. 2007  

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar tekið til starfa

Innan körfuknattleiksdeildarinnar hefur unglingaráð verið sett á laggirnar. Hugmyndir að því voru kynntar á aðalfundi deildarinnar í september og síðan þá hefur verið unnið að undirbúningi stofnunar ráðsins.
Óli
   
 
DAGSKRÁ
Maí 2013
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
 
SPJALLIÐ
Taktu þátt í spjallinu, segðu þína skoðun, leggðu eitthvað til málanna.
Skoða >>

skidi.jpg

Logo_landsbankamot

kroksmot-banner.jpg

Sparisjóður Skagafjarðartengilllogo.gif

fjolnet_logo (2).jpg

 

UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 650269-5949