|
13:40 |
27. feb. 2013 |
Ađalstjórn |
Aðalfundur Tindastóls verður haldinn 13. mars nk. kl. 20.00 í Húsi Frítímans.
Auk almennra aðalfundarstarfa verða styrkir veittir úr minningasjóði Rúnars Inga Björnssonar. Tekið er við umsóknum til 7. mars og hvetjum við unga afreksmenn og afrekshópa til að sækja um í sjóðinn.
Við minnum deildir félagsins á að halda sína aðalfundi og ganga frá ársskýrslum sem fyrst.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Aðalstjórn Tindastóls
|
Inga Huld |
|
13:55 |
13. feb. 2013 |
Ađalstjórn |
Knattspyrnumaðurinn Atli Arnarson var valinn íþróttamaður Tindastóls 2012. Óhætt er að segja að Atli hafi verið lykilmaður í knattspyrnuliði Tindastóls síðustu ár og ungmennum góð fyrirmynd.
Valið á Íþróttamanni Tindastóls fer þannig fram að hver deild tilnefnir sinn fulltrúa í kjörið og gerir grein fyrir afrekum hans á árinu.
Niðurstaðan var sú að Atli hlaut titilinn íþróttamaður Tindastóls 2012. Aðrir sem tilnefndir voru til íþróttamanns Tindastóls voru:
Helgi Rafn Viggósson, körfuknattleiksdeild
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, frjálsíþróttadeild
María Finnbogadóttir, skíðadeild
Sigrún Þóra Karlsdóttir, sunddeild
Aðalstjórn Tindastóls óskar Atla til hamingju með titilinn og öðrum sem tilnefndir voru til íþróttamanns Tindastóls einnig til hamingju með viðurkenninguna. |
Inga Huld |
|
23:37 |
04. jan. 2013 |
Ađalstjórn |
Það var FISK Seafood á Sauðárkróki sem gaf Tindastóli þessa höfðinglegugjöf. Um er að ræða Mercedes Benz Sprinter 519 CDI. Bifreiðin er ný og öll hin glæsilegasta og tekur 17 farþega. Það var Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood sem afhenti aðalstjórn Tindastóls bílinn. Jón lagði ríka áherslu á mikilvægi þess að iðkendur íþrótta hjá Tindastóli væru öruggir á ferð um landið og þessi bíll mun svo sannarlega stuðla að því, auk þess sem hann mun draga verulega úr ferðakostnaði iðkenda. Gunnar Gestsson formaður Tindastóls tók við gjöfinni og bauð viðstöddum að skoða bifreiðina og loks var öllum boðið á rúntinn í nýja bílnum.
Aðalstjórn Tindastóls vill þakka FISK Seafood fyrir þessa veglegu gjöf sem mun breyta miklu fyrir starfsemi félagsins.
|
Inga Huld |
|
17:57 |
01. mars 2012 |
Ađalstjórn |
Aðalfundur Tindastóls verður haldinn 7. mars nk. í Húsi frítímans kl. 20.00. |
Inga Huld |
|
00:08 |
14. feb. 2012 |
Ađalstjórn |
Aðalstjórn vill minna á Velferðarsjóð íþróttahreyfingarinnar. Um er að ræða styrktarsjóð sem UMSS, Tindastóll og Sveitarfélagið Skagafjörður koma að og er ætlað greiða götu ungra iðkenda sem þurfa á fjárhagslegum stuðningi að halda til að stunda sínar íþróttir. Þjálfarar eru beðnir um að kynna sér reglur um úthlutun úr sjóðnum og vera vakandi fyrir slíkri þörf. |
Inga Huld |
|
23:52 |
13. feb. 2012 |
Ađalstjórn |
Aðalstjórn Tindastóls vill minna á Minningarsjóð Rúnars Inga Björnssonar.
Aðalstjórn vill hvetja afreksfólk og afrekshópa til að sækja um í sjóðinn. Farið verður yfir umsóknir fyrir Aðalfund Tindastóls, úthlutun fer svo fram á fundinum.
Stefnt er að því að halda Aðalfund UMFT 1. mars n.k. |
Inga Huld |
|
23:39 |
13. feb. 2012 |
Ađalstjórn |
Skíðadeild Tindastóls gengur nú í hús á Sauðárkróki og býður íbúum að gerast félagsmenn í Tindastóli. Bent er á að það er val félagsmanna hvort þeir greiði árgjald eða ekki. Árgjald félagsins er kr. 2.500, sem nýtt er í afrekssjóð félagsins. Afrekssjóður er m.a. nýttur til að
styrkja efnilega leikmenn í æfingabúðir ofl.
Úthlutunarreglur úr lottósjóði ÍSÍ taka mið af fjölda félagsmanna og
iðkendafjölda í félögum og skiptir það því miklu máli fyrir félagið að hafa
sem flesta félagsmenn. Foreldrar eru því hvattir til þess að skrá bæði sig og börn sín sem félagsmenn. Við viljum benda á að þótt barn sé skráð iðkandi hjá félaginu þá er það ekki félagsmaður fyrr en búið er að skrá það.
Um leið býðst ykkur N1 kortið sem veitir ykkur afslátt af eldsneyti og vörum hjá N1. Að auki fer hluti af hverjum eldsneytislítra til Tindastóls. Ef þið eruð nú þegar með N1 kortið en viljið að Tindastóll njóti góðs af því er hægt að tengja það við hópanúmer Tindastóls 414
Aðalstjórn Tindastóls hvetur
alla íbúa Sauðárkróks og nágrennis
að gerast félagsmenn í Tindastóli
|
Inga Huld |
|
09:19 |
22. sep. 2011 |
Ađalstjórn |
Aðalstjórn Tindastóls vill óska meistaraflokki karla og knattspyrnudeild Tindastóls til hamingju með sigurinn í 2. deild og sætið í 1. deild. Þessi árangur er hvatning fyrir alla iðkendur og deildir Tindastóls. Verður gaman að fylgjast með liðinu í 1. deild á næsta ári. |
maggi |
|
22:30 |
07. júl. 2009 |
Ađalstjórn |
Aðalstjórn UMFT hefur í samstarfi við Tískuhúsið látið hanna nýja utanyfirgalla fyrir félagið.Vörurnar eru frá Henson og hefur Tískuhúsið tekið að sér það verkefni að sjá um að panta og selja gallana. |
gaui |
|
15:36 |
04. mars 2009 |
Ađalstjórn |
Haldinn fimmtudagskvöldið 26. febrúar 2009.Aðalfundur UMF Tindastóls vegna ársins 2008 var haldinn fimmtudagskvöldið 26. febrúar 2009.
Nýr stjórnarmaður í aðalstjórn var kjörinn Jón Daníel Jónsson. Með honum í stjórninni eru Gunnar Þór Gestsson, Magnús Helgason, Elínborg Svavarsdóttir og Kristjana Jónsdóttir. |
Jakob |
|
10:00 |
05. des. 2007 |
Ađalstjórn |
Öflugur stuðningurGunnar Gestsson formaður Tindastóls fór á fund hjá Menningarsjóði Kaupfélagsins og tók á móti veglegum styrk. |
Jakob |
|
14:12 |
29. mars 2007 |
Ađalstjórn |
Smá þolinmæði ...Eins og sjá má má þá hefur Ungmennafélagið Tindastóll tekið í notkun nýja heimasíðu fyrir félagið. Markmiðið er að síðan verði upplýsingabrunnur um það þróttmikla starf sem fram fer í deildum félagsins.
|
Óli |
|
18:20 |
06. feb. 2007 |
Ađalstjórn |
Samningur við NýprentUMF Tindastóll hefur náð samkomulagið við Nýprent um hýsingu og rekstur á vefsíðu fyrir félagið. |
Óli |