MYNDIR
09. apríl 2013
skíði 012.jpg
09. apríl 2013
skíði 076.jpg
09. apríl 2013
kátir krakkar.jpg

 

Lög Ungmennafélagsins Tindastóls

      1.      grein. Heiti félagsins :

Félagið heitir Ungmennafélagið Tindastóll, skammstafað U.M.F. Tindastóll. Lögheimili þess er Sauðárkrókur. Merki þess er hvítt T í jafnarma þríhyrni í bláum og rauðum grunni

2.      grein. Tilgangur félagsins :

Að vernda og efla stjórnarfarslegt, menningarlegt og fjárhagslegt sjálfstæði Íslendinga og vekja virðinu þeirra fyrir þjóðernislegum verðmætum sínum.

Að hjálpa félagsmönnum og öðrum æskulýð til aukins þroska með fræðslu og íþróttastarfsemi, og til íhugunar um þjóðnytjamál og vinna að framgangi þeirra.

Að stuðla að bindindi og vernda ungmenni landsins gegn neyslu áfengra drykkja og eiturlyfja og vinna að heilbrigðu skemmtana ? og félagslífi.

Að vinna að bættri lífsafkomu þjóðfélagsþegna.

Að beita sér fyrir uppgræðslu, skógrækt og náttúruvernd.

Að vinna að því að skapa í hvívetna heilbrigðan hugsunarhátt meðal æskulýðs, í fjármálum, heilsuverndum og fegrun móðurmáls.

3.      grein. Starfsaðferðir :

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með fundarhöldum, íþróttaiðkunum, blaðaútgáfu og annari félagsmálastarfsemi. Ennfremur að halda í fjölbreytt námskeið og vinna að ýmsum framkvæmdum eftir því sem þurfa þykir.

4.      grein. Innganga og úrsögn :

Félagar geta allir orðið, sem lagt hafa fram skriflega inntökubeiðni, með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu og heimilisfang. Þó skulu unglingar innan 18 ára aldurs leggja fram skriflegt leyfi a.m.k. annars foreldris eða forráðamanns til inngöngu. Þegar þessi skilyrði hafa verið uppfyllt er umsækjandi þegar fullgildur félagi. Jafnframt verða allir þeir sem opinberlega keppa undir merki félagsins sjálfkrafa félagar.

Úrsögn úr félaginu skal tilkynna skriflega til aðalstjórnar.

Halda skal skrá yfir alla meðlimi félagsins, svo séð verði á hverjum tíma hverjir eru fullgildir félagar.

5.      grein. Félagsgjöld :

Félagar skulu greiða árgjald til félagsins. Skal það ákveðið á aðalfundi ár hvert. Árgjald rennur í aðalsjóð félagsins.

6.      grein. Deildir :

Iðkendum hverrar íþróttagreinar er heimilt að mynda deildir innan félagsins. Hver íþróttadeild skal hafa sérstaka stjórn og aðskilin fjárhag. Skal hver deild sjá um sig sjálf fjárhagslega og hafa tekjur að ágóða móta og kappleikja í viðkomandi grein, svo og af öðrum fjáröflunum, sem hún tekur sér fyrir hendur í samráði við aðalstjórn. Stjórn hverrar deildar annast rekstur hennar.

Að öðru leyti lúta deildirnar sameiginlegri aðalstjórn félagsins, sem fer með æðsta vald í málum þess milli aðalfunda.

Ákvörðun um stofnun nýrrar deildar innan félagsins verður aðeins tekin á aðalfundi.

7.      grein. Stjórn :

Stjórn félagsins skipa 5 menn ; formaður, ritari, gjaldkeri, varaformaður og meðstjórnandi. Skulu þeir kosnir á hverjum aðalfundi, formaður skal kosinn sérstaklega, en að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. Formaður stjórnar fundum eða skipar aðra félagsmenn til þess. Ritari heldur gjörðabók félagsins og ritar fundargerðir. Gjaldkeri innheimtir tekjur og greiðir gjöld félagsins. Gjaldkeri heldur reikninga félagsins. Reikningsár félagsins er almanaksárið 1. janúar til 31. desember.

8.      grein. Aðalfundur :

Aðalfundur félagsins skal haldinn á tímabilinu frá 15. febrúar til 15. apríl ár hvert, og skal þar kosin stjórn, 2 endurskoðendur og nefndir félagsins fyrir næsta ár, og endurskoðaðir reikningar síðasta árs bornir upp til samþykktar. Fráfarandi stjórn skal á aðalfundi leggja fram ársskýrslu og skýra frá starfi og hag félagsins undanfarið starfsár.

Aðalfundur skal boðaður með minnst viku fyrirvara og er hann lögmætur, sé löglega til hans boðað.

Aðalfundur úrskurðar um meint brot á félagslögum og ákvarðar viðurlög.

Aukaaðalfund skal boða með sama hætti og reglulegan aðalfund. Reglur um aðalfund gilda, eftir því sem við á, um aukaaðalfund. Þó skulu lagabreytingar, stjórnarkjör og stofnun nýrra deilda, aðeins fara fram á reglulegum aðalfundi.

9.      grein. Félagsfundir :

Félagsfund skal boða ef a.m.k. 20 félagsmenn krefjast þess eða þegar aðalstjórn ákveður.

10.  grein. Heimild stjórnar :

Heimilt er stjórn að skipa í nefndir milli aðalfunda er þurfa þykir. Allir félagar í U.M.F.Í. hafa málfrelsi og tillögurétt á félagsfundum.

11.  grein. Verkefni stjórnar :

Aðalstjórn skal vinna að því að efla félagið á allan hátt og gæta hagsmuna þess út á við. Hún skal einnig samræma starfsemi félagsins inn á við og hafa eftirlit með starfsemi deildanna. Hún hefur umráðarétt yfir eignum félagsins og markar stefnu þess í öllum veigamiklum málum. Hún skal þó jafnan hafa samráð við stjórnir deildanna um mál er þær varðar sérstaklega.

12.  grein. Stjórnir deilda :

Hver deild innan félagsins skal hafa sérstaka stjórn, sem skipuð er þremur mönnum hið fæsta. Skulu þeir kosnir á aðalfundum deildanna, en hver deild skal halda aðalfund árlega. Reglur um fundarboðun, lögmæti fundar og dagskrá, sem gilda um aðalfund félagsins, gilda einnig um aðalfundi deildanna, eftir því sem við á. Að loknum aðalfundi hverrar deildar og eigi síður en 15. febrúar ár hvert, skulu stjórnir deildanna skila aðalstjórn skýrslu sinni um starsemi viðkomandi deildar, ásamt endurskoðuðum og samþykktum reikningum deildarinnar.

Aðalstjórn skal taka helstu atriði úr skýrslum deildanna upp í skýrslu sína á aðalfundi félagsins.

Vanræki íþróttadeild að halda aðalfund á lögákveðnum tíma, skal aðalstjórn félagsins boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.

Einstakar deildir skili rekstraruppgjöri til aðalstjórnar á fjögurra mánaða fresti 30. apríl, 31. ágúst og 31. desember ár hvert.

13.  grein. Formannafundir :

Eigi sjaldnar en þrisvar á ári skal aðalstjórn félagsins halda fundi með formönnum deildanna, þar sem þeir gera stjórninni grein fyrir starfsemi deildanna. Á fundum þessum skal einnig ákveða skiptingu styrkja og annara tekna aðalsjóðs félagsins milli deildanna og samræma starfsemi þeirra. Komi upp ágreiningur milli einstakra deilda, sker aðalstjórn úr.

14.  grein. Eignir félagsins :

Allar eignir félagsins, hvort sem þær eru í umsjá aðalstjórnar eða einstakra deilda, er sameign félagsins. Hætti íþróttadeild starfsemi, skal stjórn hennar afhenda aðalstjórn allar eignir hennar svo og fundargerðarbækur og hverskonar gögn, sem varpa starsemi hennar. Verðlaunagripir og verðmæt sköl skulu ávallt vera í vörslu aðalstjórnar.

15.  grein. Skuldsetning félagsins :

Óheimilt er að skuldsetja félagið eða einstakar deildir þess nema með samþykki meirihluta aðalstjórnar. Stofni einstakar deildir fjárhagslega skuldbindingu án þessa samþykkis verða þær á ábyrgð þeirra sem til þeirra stofna og félaginu óviðkomandi.

16.  grein. Heiðursveitingar :

Heiðursfélagsmerki U.M.F. Tindastóls. Aðalfundur hefur heimild til að kjósa heiðursfélaga að tillögu stjórnar, en umræður um uppástungu að heiðursfélaga skulu ekki leyfðar. Við þá samþykkt þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Heiðurfélögum skal við hátíðlega athöfn afhent heiðursmerki U.M.F. Tindastóls úr gulli, sem er æðsta heiðursmerki ungmennafélagsins. Viðtakandi verður að hafa unnið mikið og samfellt starf fyrir U.M.F. Tindastól.

Starfsmerki U.M.F. Tindastóls má veita fyrir frábært átak eða afrek í félagstörfum, skipulagstörfum, framkvæmdastjórn eða á íþróttasviðinu. Til grundvalla þarf ekki að liggja langt samfellt starf.

Gestamerki U.M.F. Tindastóls má veita aðilum utan félagsins, sem í verki hafa sýnt því sérstakan sóma og velvild.

17.  grein. Lagabreytingar :

Engu má breyta í lögum þessum nema á aðalfundi og þá með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Greini lög þessi á við sambandslög U.M.F.Í eru sambandslögin réttari meðan félagið er í U.M.F.Í.

18.  grein. Gildistaka :

Lög þessi öðlast þegar gildi og falla jafnframt úr gildi öll eldri lög félagsins.

Samþykkt á aðalfundi 16. apríl 2002.

 

Engin æfing í dag 24.maí
:: meira
Eddi átti góðan leik
Eddi átti góðan leik
Þrjú stig á töfluna
2-1 sigur á Reykajvíkur Þrótti
Steven Beattie og Elvar Páll með mörk okkar manna sem lönduðu fyrsta deildarsigrinum í ár. Næsti leikur er gegn Hamri á miðvikudaginn, en spilað verður á Grýluvelli.
:: meira
Flugsund
Flugsund
Venjulegar sundæfingar byrjaðar
Sundæfingar eru aftur byrjaðar eins og á æfingartöflu hér vinstra megin. Hlökkum til að sjá ykkur á æfingu.
:: meira
Steven Beattie #13 skoraði
Steven Beattie #13 skoraði
Jafntefli í fyrsta heimaleik tímabilsins
Tindastóll gerði 1-1 jafntefli gegn Völsung. Liðið er komið með tvö stig eftir tvo leiki. Næsti leikur er á fimmtudaginn gegn Þrótti, en sá leikur er sýndur í beinni á SportTV.
:: meira
 
DAGSKRÁ
Maí 2013
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
 
SPJALLIÐ
Taktu þátt í spjallinu, segðu þína skoðun, leggðu eitthvað til málanna.
Skoða >>

skidi.jpg

Logo_landsbankamot

kroksmot-banner.jpg

Sparisjóður Skagafjarðartengilllogo.gif

fjolnet_logo (2).jpg

 

UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 650269-5949