MYNDIR
09. apríl 2013
skíði 030.jpg
09. apríl 2013
skíði 007.jpg
09. apríl 2013
skíði 006.jpg

 

Þetta er helst í fréttum frá aðalstjórn Tindastóls

Aðalfundur Tindastóls
Aðalfundur Tindastóls verður haldinn 13. mars nk. kl. 20.00 í Húsi Frítímans. Auk almennra aðalfundarstarfa verða styrkir veittir úr minningasjóði Rúnars Inga Björnssonar. Tekið er við umsóknum til 7. mars og hvetjum við unga afreksmenn og afrekshópa til að sækja um í sjóðinn. Við minnum deildir félagsins á að halda sína aðalfundi og ganga frá ársskýrslum sem fyrst. Vonumst til að sjá sem flesta. Aðalstjórn Tindastóls
:: meira
Atli Arnarson íþróttamaður Tindastóls
Knattspyrnumaðurinn Atli Arnarson var valinn íþróttamaður Tindastóls 2012. Óhætt er að segja að Atli hafi verið lykilmaður í knattspyrnuliði Tindastóls síðustu ár og ungmennum góð fyrirmynd. Valið á Íþróttamanni Tindastóls fer þannig fram að hver deild tilnefnir sinn fulltrúa í kjörið og gerir grein fyrir afrekum hans á árinu. Niðurstaðan var sú að Atli hlaut titilinn íþróttamaður Tindastóls 2012. Aðrir sem tilnefndir voru til íþróttamanns Tindastóls voru: Helgi Rafn Viggósson, körfuknattleiksdeild Jóhann Björn Sigurbjörnsson, frjálsíþróttadeild María Finnbogadóttir, skíðadeild Sigrún Þóra Karlsdóttir, sunddeild Aðalstjórn Tindastóls óskar Atla til hamingju með titilinn og öðrum sem tilnefndir voru til íþróttamanns Tindastóls einnig til hamingju með viðurkenninguna.
:: meira
Tindastóll fékk bíl að gjöf
Það var FISK Seafood á Sauðárkróki sem gaf Tindastóli þessa höfðinglegugjöf. Um er að ræða Mercedes Benz Sprinter 519 CDI. Bifreiðin er ný og öll hin glæsilegasta og tekur 17 farþega. Það var Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood sem afhenti aðalstjórn Tindastóls bílinn. Jón lagði ríka áherslu á mikilvægi þess að iðkendur íþrótta hjá Tindastóli væru öruggir á ferð um landið og þessi bíll mun svo sannarlega stuðla að því, auk þess sem hann mun draga verulega úr ferðakostnaði iðkenda. Gunnar Gestsson formaður Tindastóls tók við gjöfinni og bauð viðstöddum að skoða bifreiðina og loks var öllum boðið á rúntinn í nýja bílnum. Aðalstjórn Tindastóls vill þakka FISK Seafood fyrir þessa veglegu gjöf sem mun breyta miklu fyrir starfsemi félagsins.
:: meira
Aðalfundur Tindastóls
Aðalfundur Tindastóls verður haldinn 7. mars nk. í Húsi frítímans kl. 20.00.
:: meira
 
DAGSKRÁ
Maí 2013
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
 
SPJALLIÐ
Taktu þátt í spjallinu, segðu þína skoðun, leggðu eitthvað til málanna.
Skoða >>
Lokastaðan í deildinni 2012/2013
# Félag
u/t
Stig
1 Grindavík

14/4

28
2 Þór Þ 16/6 32
3 Snæfell 16/6 32
4 Stjarnan 15/7

30

5 Keflavík 13/9 26

6

Njarðvík

12/10

24
7 KR

11/11

22
8 Skallagrímur  7/11 14
9 ÍR  6/16 12
10 KFÍ 6/16 12
11 Tindastóll  6/16 12
12 Fjölnir

 5/17

10
          ks  Sp Sk.        Landsbanki        VÍS TengillFjölnet
UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 650269-5949