MYNDIR
05. ágúst 2010
Kroksmot2010.jpg
08. ágúst 2010
IMG_7941.jpg
17. júlí 2010
IMG_7578.jpg
Vinstri dálkur 

Yfirlit_minni 

Almennt um skíðasvæðið

Skíðasvæðið er í vestanverðum Tindastól í dal sem heitir Ytridalur. Nær sá dalur suður að Þröskuldi og norður að Lambárbotnum. Neðsti hluti hlíðarinnar heitir Lambárbreiður. Þar er fremur snjóþungt enda svæðið í vari fyrir norðanátt.

Svæðið er í 15 km fjarlægð frá Sauðárkróki.

Lyftan byrjar í 445m hæð yfir sjó og liggur upp í 690 m hæð. Fyrstu 300 metrarnir eru hentugir fyrir byrjendur og þá sem ekki treysta sér í mikinn bratta, svo auðvelt er fyrir alla fjölskylduna að koma til okkar á skíði. Göngubraut er troðin alla daga sem opið er á svæðinu. Troðinn er 4-5 km hringur í fjölbreyttu landslagi sunnan við lyftuna, en einnig er hægt að fara styttri hring á tiltölulega sléttu svæði. Hér er Tindastólsgangan haldin árlega, en hún er hluti af Íslandsgöngu Skíðasambandsins. Skíðalandsmót Íslands 2005 var haldið hér og þótti takast vel til.

Ekki má gleyma fólkinu sem er á brettum, við bjóðum þeim að leika sér í giljum sem eru þarna á svæðinu að ógleymdum Lambárbotnunum sjálfum sem eru nánast lóðréttir og rennslið er um 3km

Lyftan er diskalyfta af Leitner gerð og var vígð 5. feb. 2000. Lyftan er mjög fullkomin, og er hægt að stilla ganghraða hennar eftir aðstæðum í hvert sinn, hraðast ber hún mann á toppinn á 5,2 mín. Lyftan afkastar mest um 900 manns á klukkustund.

Í skíðaleigunni okkar er hægt að leigja svigskíði, gönguskíði og bretti. Í boði eru ýmsar stærðir þannig að bæði ungir og aldnir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Troðari félagsins er af Leitner LH 500 gerð, og fengum við hann nýjan hingað til lands. Hann hefur reynst okkur mjög vel. Stór verkfæraskemma er einnig á svæðinu.

Skíðadeildin er með vefmyndavél og veðurstöð á skíðasvæðinu. Þessi búnaður er beintengdur við heimasíðu deildarinnar og uppfærast veðurupplýsingar á 15 mín. fresti allan sólarhringinn, en myndin uppfærist á 15 mín fresti milli 10 og 17.

Skíðaskáli deildarinnar á sér langa sögu. Hann hefur þjónað Skagfirðingum í tugi ára, fyrst sem flugstöðvarbygging við Sauðárkróksflugvöll, síðar sem skíðaskáli á gamla svæðinu og nú á hinu nýrra. Þar er boðið upp á kaffi, kakó og frábært bakkelsi, og þar er einnig að finna skíðaleiguna með svigskíðum, gönguskíðum og brettum af ýmsum stærðum. Ekki er hægt að gista í þessum skála, og oft er þröng á þingi þegar margir eru á svæðinu, en alltaf glatt á hjalla, og gott að hressa sig við eftir átökin við snjóinn. Þegar stórir hópar koma í heimsókn, er yfirleitt útbúin aðstaða í skemmunni og hefur það mælst vel fyrir.

Framundan er áframhaldandi uppbygging á svæðinu. Settur hefur verið upp búnaður til snjóframleiðslu og áfromað er að byggja skíðaskáli og loks lyfta á toppinn.

Við bjóðum alla hjartanlega velkomna til okkar í Tindastól.

Tengiliðir

Skíðaskáli: 453-6707

Uppl. um veður og færð: 878-3043

Skíðalyfta: Viggó Jónsson HS: 4535913 GSM:8999073 Email

Skíðadeild: Sigurður Bjarni Rafnsson hs:453-5305 gsm 825 4594 Email

Vefsíðan: Jakob Frímann Þorsteinsson Email

 
DAGSKRĮ
September 2010
SMŽMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNśnaNęsti
 
SPJALLIŠ
Taktu žįtt ķ spjallinu, segšu žķna skošun, leggšu eitthvaš til mįlanna.
Skoša >>
Iceland Express
Staðan í deildinni 2009/2010
# Félag
u/t
Stig
1 KR 18/4 36
2 Keflavík  17/5 34
3 Grindavík  16/6 32
4 Stjarnan  15/7 30
5 Njarðvík 15/7 30

6

Snæfell

14/8

28
7 Tindastóll 9/13 18
8 ÍR  8/14 16
9 Fjölnir  7/15 14
10 Hamar  7/15 14
11 Breiðablik  5/17 10
12 FSu  1/21 2
          ksArion banki  Sp Sk.        Lýsing   Landsbanki        VÍS
HEIMASÍÐA TINDASTÓLLS ER KEYRÐ Á SMALA xL 2
UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 723470-7649