Íþróttamaður Skagafjarðar 2015

 

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir frjálsíþróttakona úr Tindastól hlaut sæmdarheitið „Íþróttamaður Skagafjarðar 2015“, og hún var einnig valin „Íþróttamaður Tindastóls 2015“.  Þetta var tilkynnt í hófi sem UMSS hélt 27. desember.

Þóranna stóð sig frábærlega á frjálsíþróttamótum ársins.

Á innanhússmótunum varð Þóranna Íslandsmeistari í hástökki kvenna, stökk 1,67m sem er skagfirskt héraðsmet.  Hún sigraði einnig í hástökki og 60m grindahlaupi á MÍ-15-22 ára.

Á utanhússmótunum varð hún Íslandsmeistari í hástökki og sigraði í hástökki og 100m grindahlaupi á MÍ-15-22 ára.

Þóranna Ósk var valin til keppni í hástökki með landsliði Íslands bæði á Smáþjóðaleikunum og í  Evrópukeppni landsliða og stóð sig með sóma.

Á uppskeruhátíð frjálsíþróttaráðs UMSS var hún svo útnefnd „Frjálsíþróttakona UMSS 2015".

Til hamingju Þóranna Ósk !