Íþróttamaður Tindastóls 2012

Knattspyrnumaðurinn Atli Arnarson var valinn íþróttamaður Tindastóls í hófi sem var haldið í dag á Sauðárkróki.  Hver deild innan Tindastóls tilnefndi sinn fulltrúa í þetta kjör þar sem Atli varð hlutskarpastur.

 

Atli Arnarson sem er fæddur árið 1993 hefur verið lykilmaður í knattspyrnuliði Tindastóls á síðustu árum og er drengur góður jafnt innan vallar sem utan.

 

Knattspyrnudeild Tindastóls óskar Atla til hamingju með viðurkenninguna.