Riðlaskipting í 1.deild kvenna klár

Riðlaskipting er klár fyrir keppni í 1. deild kvenna í sumar. Í 1. deild kvenna eru leikið í tveimur riðlum þar sem annar inniheldur níu félög en hinn átta. 

Leikin er tvöföld umferð áður en kemur fjögurra liða úrslitakeppni. Eitt nýtt lið tekur þátt í ár en það er Víkingur frá Ólafsvík. 

A-riðill: 
Álftanes 
BÍ/Bolungarvík 
Fram 
Fylkir 
Haukar 
ÍA 
ÍR 
Tindastóll 
Víkingur Ó. 

B-riðill: 
Fjarðabyggð 
Fjölnir 
Grindavík 
Höttur 
Keflavík 
KR 
Sindri 
Völsungur