M.fl.karla

Halldór Jón Sigurðsson ( Donni ) hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Tindastóls og mun stýra liði m.fl. karla þann tíma.

 

Donni tók við liðinu um mitt sumar árið 2010 og kom liðinu upp í 1.deild.  S.l. sumar stýrði hann liðinu í þeirri deild þar sem liðin spilaði oft á tíðum gríðarlega skemmtilegan fótbolta og vakti athygli margra. 

 

Mikil ánægja hefur verið innan liðsins með Donna og stjórn knattspyrnudeildarinnar er ekki síður ánægð með störf hans á síðustu árum.