Hólmar Eyjólfsson leikur með Tindastóli í sumar.

Knattspyrnumaðurinn Hólmar Eyjólfsson mun leika með Tindastóli í sumar í 1.deildinni.  Samningar náðust rétt fyir páska  við félag hans VfL Bochum í Þýskalandi, en það var faðir hans Eyjólfur Sverrisson sem sá um þessa samninga fyrir Tindastól.

 

Hólmar er fæddur á Sauðárkróki árið 1990 og er sonur þeirra Eyjólfs Sverrissonar og Önnu Pálu Gísladóttur sem bæði eru Króksarar.   Hólmar mun þó ekki leika allt tímabilið með Tindastóli, aðeins í júní og júlí en þá þarf hann að mæta til VfL Bochum á ný.

 

Þeir feðgar, Hólmar og Eyjólfur komu á Krókinn um hádegisbilið í dag og heilsuðu upp á væntanlega liðsfélaga og stjórn knattspyrnudeildarinnar.

 

Hólmar á 47 landsleiki að baki með ungmennaliðum Íslands og einn A landsleik.

 

Það verður mjög gaman að fá Hólmar hingað til okkur og hann kemur til með að styrkja okkur mikið.  Hólmar getur spilað margar stöður fyrir okkur á vellinum og það verður frábært að sjá svo góðan leikmann í okkar hópi.

 

Fyrsti leikurinn sem Hólmar mun leika verður væntanlega 1. júní á móti Grindavík á Sauðárkróksvelli.

 

Eyjólfur Sverrisson faðir Hólmars lék fjölda leikja með Tindastóli hér á árum áður en gerðist síðan atvinnumaður m.a. í Þýskalandi.