FISK Seafood gefur Tindastóli góða gjöf

Fyrr í dag afhenti FISK Seafood á Sauðárkróki Tindastóli veglega gjöf.  Það var fólksflutningabifreið að gerðinni Mercedes Benz Sprinter 519 CDI.  Bifreiðin er ný og  beint úr kassanum.  Bifreiðin tekur 17 farþega og er sérstaklega gott bil á milli sætanna og eins er mjög mikið pláss fyrir töskur og farangur enda er bifreiðin sérlega löng.  Í bifreiðinni er einnig afþreyingakerfi sem inniheldur m.a. DVD skjá og spilara.

 

Það var Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood sem afhenti Tindastóli bílinn og lagði áherslu á öryggi barna og unglinga á ferðum þeirra fyrir Tindastól.  Hann sagðist gera sér grein fyrir miklum ferðakostnaði í íþróttum og vonaði að þessi gjöf kæmi sér vel fyrir iðkendur og fjölskyldur sem eru með börn og unglinga í skipulögðu íþróttastarfi.  Einnig sagði hann að gjöfin væri viðurkenning og um leið hvatning  fyrir gott starf hjá félaginu.

 

FISK Seafood hefur verið sérstaklega öflugur stuðningsaðili við knattspyrnudeild Tindastóls í gegnum tíðina og er m.a. aðalstyrktaraðila að Króksmóti FISK sem haldið er á Sauðárkróki ár hvert.

 

Knattspyrnudeildin færir FISK Seafood þakkir fyrir þessa frábæru gjöf.