Edvard Börkur kominn aftur í Tindastól

Tindastóll hefur fengið besta leikmann síðasta tímabils aftur í sínar raðir. Strax eftir síðasta leik í fyrra fólust Valsmenn eftir kröftum hans, og skipti hann yfir í sitt uppeldisfélag. Eddi hefur hinsvegar ákveðið að flytja búferlum alfarið norður á Sauðárkrók og gengið var frá lánssamningi við Edda út tímabilið. Þetta er gríðarlega mikill styrkur fyrir okkur og bjóðum við strákinn hjartanlega velkominn norður í sæluna. 

Eddi spilaði sinn fyrsta leik með Tindastól í gær í fotbolta.net mótinu, en þar beið Tindastóll lægri hlut gegn Haukamönnum á Schenkervellinu. Úrslit leiksins 1-0.