Ben Everson skrifar undir hjá York City

Ben Everson sem spilaði með okkur síðasta sumar er búinn að semja við York City til loka tímabils. York City spilar í League Two, sem er fjórða efsta deild á Englandi. Ben er búinn að vera á "Trial" hjá York í 3-4 vikur og leyst stjóra liðsins vel á Ben og samdi við hann. York er í 15.sæti deildarinnar með 35.stig. Knattspyrnudeildin óskar Ben til hamingju með samningin.

Hérna má lesa grein um félagaskiptin