M.fl.karla

Tindastóll – Dalvík/Reynir          1 -2

0 – 1 Alexander Már Hallgrímsson (20´)
0 – 2 Steinar Logi Rúnarsson (73´)                           
1 – 2 Snorri Geir Snorrason (86´)

Leikurinn fór fram í Boganum laugardaginn 5. apríl og því aðstæður eins og góðar og þær gerast.

Byrjunarlið:  Stefán Árna í marki, varnarlínuna skipuðu Arnar Skúli, Bjarki Már, Kári og Bjarni Smári, á miðjunni voru Konni, Fannar Örn og Guðni, á köntunum voru Óskar Smári og Hólmar Daði, fremstur var svo Fannar Freyr.

Um leið og leikurinn byrjaði þá tók Dalvík/Reynir völdin á vellinum.  Leikmenn Tindastóls virkuðu þreyttir og kraftlitlir.  Það lá í loftinu frá upphafi að D/R væri að fara að taka forystuna og skoruðu þeir mark á 20.mínútu.  Og þannig var staðan í hálfleik 0 – 1.  Fyrri hálfleikur var alls ekki vel leikinn af hálfu Tindastóls.

Í seinni hálfleik batnaði leikur Tindastóls aðeins en samt var liðið ekki að leika vel.  D/R náði að auka forystuna, 0 – 2 á 73. mínútu.

Þegar skammt var til leiksloka þá slapp hinn lipri Snorri Geir í gegn og eins og venjulega afgreiddi hann færið sitt af stakri snilld.  Staðan 1 – 2  og smá vonarneisti kviknaði.  Á síðustu mínútunni fékk Konni algert dauðafæri eftir hornspyrnu en markmaður D/R varði vel og þar við sat.

Óhætt er að segja að leikmenn Tindastólsliðsins hafi á engan hátt fundið sig í þessum leik en áfram höldum við og horfum fram á veginn.

Skiptingar
Arnar Skúli út – Stinni inn á 15.mín
Guðni út – Benni inn á 46.mín
Bjarki Már út – Ívar inn á 46.mín
Hólmar Daði út – Ágúst inn á 46.mín
Fannar Freyr út – Snorri Geir inn á 57.mín
Óskar Smári út – Reynir inn á 66.mín                     

 

Völsungur – Tindastóll                 2 -2

1 – 0 Sæþór Olgeirsson (29´)
1 – 1 Ívar Guðlaugur Ívarsson (47´)                        
1 – 2 Ívar Guðlaugur Ívarsson (81´)
2 – 2 Bjarki Baldvinsson (89´)

Leikurinn fór fram í Boganum sunnudaginn 6.apríl og annar leikur Stólanna í Lengjubikarnum á tveimur dögum.

Byrjunarlið:  Stefán Árna í marki, varnarlínuna skipuðu Ágúst, Bjarki Már, Kári og Bjarni Smári, á miðjunni voru Konni, Fannar Örn og Stinni, á köntunum voru Óskar Smári og Guðni, fremstur var svo Benni.

Leikmenn Tindastóls voru staðráðnir í að sýna betri leik en daginn áður.  Var fyrri hálfleikur í jafnvægi þó svo að Völsungur væri meira með boltann, enda bakkaði lið Tindastóls og reyndi að beita skyndisóknum.

Völsungur kemst yfir á 29. mínútu með góðu skoti utan af velli.  Staðan 1 – 0 og var hún þannig í hálfleik.

Í upphafi seinni hálfleiks mættu Stólarnir töluvert ákveðnari til leiks.   Strax í fyrstu sókn liðsins þá fær Guðni boltann út á hægri kanti og á flottar fyrirgjöf á Ívar sem skaut í fyrsta með hægri og náði markmaður Völsungs að snerta boltann en ekki nóg, því inn lak boltinn.  Staðan orðin 1 -1.

Í seinni hálfleik þá lá Tindastóll enn til baka og beitti skyndisóknum.  Og voru margar flottar sóknir sem liðið átti.

Á 81.mínútu sleppur svo Ívar einn inn fyrir vörn Völsungs og platar markmanninn upp úr skónum og leggur boltann í autt markið af mikilli yfirvegun.  Staðan 1 – 2 fyrir Tindastóli og vert að taka fram að Ívar búinn að skora bæði mörkin með hægri en hann er í meira lagi örvfættur.

Á síðustu mínútum leiksins ná leikmenn Völsungs svo að jafna metin 2 -2 og urðu það lokatölur leiksins.

Í þessum leik átti lið Tindastóls fínan leik og var frekar súrt að missa leikinn niður í jafntefli.  Frammistaða leikmanna fín, sérstaklega í ljósi þess að þetta var annar leikur liðsins á jafn mörgum dögum, en margt gott hægt að taka með úr leiknum.

Skiptingar
Konni út – Ívar inn á 34.mín
Guðni út – Snorri Geir inn á 74.mín
Óskar Smári út – Reynir inn á 92.mín