Knattspyrnustjóri yngri flokka

Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir hefur verið ráðin knattspyrnustjóri yngri flokka Tindastóls, 8. - 3. fl. stúlkna og drengja. 

 

Dúfa Dröfn er fædd árið 1982 og æfði og lék fótbolta með Tindastóli á sínum yngri árum.  Hún er íþróttakennari að mennt og með UEFA-A þjálfaragráðu. 

 

Dúfa hefur þjálfað mikið á suðvestur horni landsins og hefur verið eftirsótt sem þjálfari bæði hér á landi og erlendis.  

 

Hlutverk knattspyrnustjóra er fjölbreytt en m.a. mun hún þjálfa nokkra flokka og hafa umsjón með og bera ábyrgð á faglegu og skipulagningu starfsins. 

 

Einnig mun Dúfa halda utan um foreldrastarf og aðkomu foreldra ásamt því að halda utan um heimasíðu yngri flokkanna.

 

Dúfa er boðin velkomin til starfa.